Cavalor Nutri Support 20kg
Um vöruna
Steinefna- og vítamínblanda fyrir tómstundahesta
• Stuðlar að jafnvægi vítamína og steinefna
• Hentar með fóðrun sem byggir aðallega á gróffóðri
• Inniheldur enga viðbótarorku eða prótein
Pakkning:
• Poki 20kg
• Fæst einni í 5 kg fötu
Meira um vöruna
Cavalor Nutri Support er sérhönnuð steinefna- og vítamínblanda fyrir tómstundahesta sem fá lítið eða ekkert kjarnfóður. Varan tryggir að hesturinn fái öll nauðsynleg næringarefni til að viðhalda góðri heilsu, þrátt fyrir lágmarks fóðrun.
Nutri Support inniheldur ekki aukna orku eða prótein og mun því hvorki gera hesta „heita“ né stuðla að ofþyngd. Hentar sérstaklega vel fyrir hesta undir léttu álagi eða frístundarhreyfingu þar sem markmiðið er jafnvægi, vellíðan og heilbrigði.
English: Official product page on Cavalor.com